18.02.1935
Neðri deild: 5. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í B-deild Alþingistíðinda. (34)

Kosning forseta og skrifara

Guðbrandur Ísberg:

Eins og hæstv. forseti gat um, var ég fjarverandi þegar kosning fór fram. Ég hefi óskað að vera laus við skrifarastörf í d., og varð samkomulag um það, að einn flokksmaður minn, hv. 11. landsk., tæki við þessu starfi. Vil ég gera þá fyrirspurn til hæstv. forseta, hvort formaður Sjálfstfl. hefir ekki tilkynnt honum þessa breyt.