19.12.1935
Neðri deild: 103. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í C-deild Alþingistíðinda. (3401)
6. mál, ríkisútgáfa námsbóka
Frsm. meiri hl. (Sigurður Einarsson):
Út af síðustu orðum hv. frsm. minni hl. menntmn. vil ég taka það fram, að við þrír, sem skrifuðum undir álit meiri hl., töldum svo brýna nauðsyn að koma máli þessu fram, að við tókum það fyrir í n. mjög fljótlega eftir að því hafði verið vísið til n. Þegar málið var tekið fyrir, voru þeir báðir, hv. 5. þm. Reykv. og hv. 11. landsk., staddir á fundi hér í húsinu; ætlaði ég því að ná til þeirra, en það misfórst. Það er því rétt, að ég hringdi í síma til hv. 5. þm. Reykv. þá um kvöldið og ræddi málið ýtarlega við hann. Tjáði hann mér þegar, að hann væri andvígur frv. En hv. 11. landsk., sem ekki var við, tók það skýrt fram, að þess væri getið í nál., að hann hefði verið fjarverandi. Hinir nm. voru allir á fundi. N. var því klofin og er klofin. Meiri hl. leggur til, að frv. verði samþ., en minni hl. vill ekki, að það nái fram að ganga.
Sakir þess, að ég met meira að tefja ekki tíma þingsins heldur en karpa við hv. 5. þm. Reykv., mun ég ekki hafa þessi orð mín fleiri, en beiðast þess, að frv. verði samþ. og að atkvgr. megi verða sem fyrst.