19.12.1935
Neðri deild: 103. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í C-deild Alþingistíðinda. (3417)

6. mál, ríkisútgáfa námsbóka

Thor Thors:

Vitanlega á hæstv. forseti enga sök á því, þó að deildin sé ekki ályktunarfær. En mér virðist, að forseti ætti að fresta umr. málsins, því að hver brtt., sem fram kemur og leita þarf afbrigða um, á að berast upp þegar deildin er ályktunarfær.