20.12.1935
Neðri deild: 104. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í C-deild Alþingistíðinda. (3427)

6. mál, ríkisútgáfa námsbóka

Ólafur Thors:

Ég er yfirleitt á móti því, að tekið sé upp slíkt einræði, sem hér er á ferðinni, að innleiða nasistavinnubrögð, og þykir í þessu tilfelli einkennilegt, að stj.flokkarnir, sem ekki hafa sagt eitt orð við þessa umr., skuli bera þetta fram, og vil ég ekki meina þeim orðið, þó þeir séu andstæðir minni skoðun, og segi því nei.