11.03.1935
Neðri deild: 25. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 100 í C-deild Alþingistíðinda. (3527)

55. mál, sala mjólkur og rjóma o.fl.

Forseti (JörB):

Ég tel það heimilt að fresta atkvgr. um málið, enda hefir það oft komið fyrir á þingi, ef nauðsyn hefir borið til. En sakir þess, að margir eru fjarverandi, mun ég ekki láta úrslit málsins vera komin undir því í kvöld, en ég vil samt sjá, hvernig atkvgr. fer, til þess að komast að raun um, hvort til þess þarf að taka að fresta atkvgr.