01.11.1935
Neðri deild: 62. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 223 í C-deild Alþingistíðinda. (3624)

151. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Mér þykir rétt í sambandi við þetta mál, um að nema útflutningsgjald af sjávarafurðum, að skýra frá því, að ríkisstj. hefir, í samráði við sína stuðningsflokka, ákveðið að leggja fyrir þetta þing nú næstu daga frv. um afnám gjalds til markaðs- og verðjöfnunarsjóðs að mestu eða öllu leyti.

Það er rétt að geta þess, að fyrir sjútvn. hafa legið tvö frv. skyld þessu máli nú að undanförnu, annað frá stjórnarflokkunum, en hitt frá fulltrúum sjávarútvegsins. Eftir þeim athugunum, sem gerðar hafa verið á þessum málum, er ákveðið að afnema gjaldið til markaðs- og verðjöfnunarsjóðs að mestu eða öllu leyti. Mér þykir rétt í sambandi við þetta mál að gefa þetta nú þegar til kynna.