13.11.1935
Sameinað þing: 21. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í B-deild Alþingistíðinda. (376)

137. mál, fjáraukalög 1933

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Út af þessum ummælum vil ég taka það fram, að við samningu frv. hefir verið farið eftir till. endurskoðenda landsreikninganna, eins og venju er til, og tel ég sjálfsagt, að það verði athugað, hvort um einstök atriði hefir verið breytt frá settum reglum og þá lagað, ef svo hefir verið, svo afgreiðsla málsins geti orðið samkv. venju.