08.03.1935
Neðri deild: 23. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í C-deild Alþingistíðinda. (3851)

47. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Sigurður Kristjánsson:

Ég geri ráð fyrir, að frumv. þetta fari til n., sem ég er í, og mun því geyma mér þangað til síðar að gera mínar aths. við það. En þó að ég greiði atkv. með því, að það fari áfram, er það ekki vegna þess, að ég telji það ekki ákaflega ófullnægjandi breyt. á þeirri löggjöf, sem fyrir er um fiskveiðasjóð Íslands, og geti því ekki leyst hlutverk sitt af hendi, nema gerðar séu breyt. á því. En ég mun geyma að tala um þetta til síðari umr. um málið.