04.04.1935
Neðri deild: 44. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 539 í C-deild Alþingistíðinda. (4078)

110. mál, eignarnám lands handa kaupfélagi Rangæinga

Forseti (JörB):

Það hefir ekkert komið fram í umr. um þetta mál, sem bent getur til þess, að frv. það, sem hér liggur fyrir, brjóti í bága við ákvæði stjskr. Margir, sem um þetta mál hafa rætt, hafa látið það í ljós, að þeir hefðu ekki nægilegan kunnugleik til þess að meta þá þörf, sem frv. ræðir um, en hafa skírskotað til þeirrar n., sem hefir fengið þetta mál til meðferðar.