04.04.1935
Neðri deild: 44. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 539 í C-deild Alþingistíðinda. (4079)
110. mál, eignarnám lands handa kaupfélagi Rangæinga
Garðar Þorsteinsson:
Með tilvísun til grg. hv. þm. Snæf. greiði ég ekki atkv. Annars tók ég það fram í ræðu minni, sem hv. 5. þm. Reykv. drap einnig á, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, mundi brjóta í bága við stjskr., og álít ég því, að hæstv. forseta beri að úrskurða um þetta atriði.