04.04.1935
Neðri deild: 44. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 540 í C-deild Alþingistíðinda. (4084)

110. mál, eignarnám lands handa kaupfélagi Rangæinga

Forseti (JörB):

Sakir þess, hve margir hv. þdm. eru fjarverandi, og sjáanlegt er, að úrslit málsins eru undir því komin, en það hefir átt sér stað, að atkvgr. hefir verið frestað undir líkum kringumstæðum, þá vil ég ekki, að úrslit þessa máls eins út af fyrir sig séu látin vera undir því komin, að marga hv. þm. vantar, einkum þar sem margir hv. þm. hafa tekið upp þann sið að greiða ekki atkv. um mál. Mun ég því fresta atkvgr. um þetta mál.