18.12.1935
Sameinað þing: 31. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 409 í B-deild Alþingistíðinda. (410)

171. mál, fjáraukalög 1934

Fram. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Þetta frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1934 er að upphæð kr. 207405.34. Ein upphæðin er sérstaklega há, eða um 145 þús. kr., en það er upphæð sú, sem veitt var vegna jarðskjálftanna norðanlands, með samþykki allra flokka. Hinar upphæðirnar nema rúmum 60 þús. Nefndin leggur til, að frv. verði samþ. og hefir ekkert við það að athuga.