14.11.1935
Neðri deild: 73. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 597 í C-deild Alþingistíðinda. (4182)

161. mál, sláturfjárafurðir

Forseti (JörB):

Ég vil beina þeirri ósk til hv. ræðumanns, að hann fresti framhaldi ræðu sinnar, þegar vel stendur á fyrir honum að hætta. Hann gerir svo vel og segir til þess, þegar hann vill hætta að þessu sinni. Umr. um þetta mál verður hvort sem er ekki lokið á þessum fundi. (PZ: Ég get hætt undir eins, ef hæstv. forseti vill). Það væri æskilegt. Er umr. þá frestað og málið tekið af dagskrá.