08.11.1935
Neðri deild: 68. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 640 í C-deild Alþingistíðinda. (4214)

166. mál, útgerð ríkis og bæja

Forseti (JörB):

Umr. eru nú komnar alllangt út frá máli því, sem hér lá fyrir, en hv. frsm. málsins hefir þó ekkert tilefni getið til þess, og af þeim, sem hingað til hafa talað, verður að vísu enginn einn sakaður um það öðrum fremur. En ég vil nú mælast til þess við þá, sem hér eftir kunna að taka til máls, að þeir haldi sér meir við efnið.