21.12.1935
Efri deild: 101. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 753 í C-deild Alþingistíðinda. (4393)

197. mál, fóðurtryggingarsjóður

Magnús Guðmundsson:

Þetta er 1. umr. þessa máls hér í d. og nú er alveg komið að þingslitum.

Ég sé að vísu, að það er búið að ganga í gegnum Nd., en ég sé það líka, að það stendur í nál. Nd. frá 17. des., að n. þar hafi ekki unnizt tími til að athuga frv. Mér finnst það satt að segja langt gengið, ef málin á að keyra í gegn án þess að þau séu athuguð í hvorugri deildinni. Ég get því ekki mælt með afbrigðum frá þingsköpum í þessu máli.