01.04.1935
Efri deild: 39. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 825 í C-deild Alþingistíðinda. (4527)

94. mál, einkaleyfi til að flytja út hrafntinnu

Pétur Magnússon:

Af því að hv. 4. landsk. hreyfir því, að 3 kr. útflutningsgjaldið sé of lágt, þá flyt ég hér skrifl. brtt. á þá leið, að þetta gjald skuli vera greitt auk venjulegs útflutningsgjalds, og að þessar 3 kr. séu aðeins fyrir einkaleyfið. En ég vil eindregið beina því til hæstv. forseta að láta atkvgr. fara fram nú á þessum fundi, því nú er hvert tækifæri að verða hið síðasta, ef hægt á að vera að hefjast handa á þessu ári.