08.11.1935
Efri deild: 64. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 882 í C-deild Alþingistíðinda. (4662)

163. mál, kennsla í vélfræði

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Sá formáli, sem ég hafði áðan fyrir frv. um stýrimannaskólann, á líka við um þetta frv., og get ég látið hann nægja. Legg ég svo til, að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og að n., sem flytur það, verði falið að athuga það nánar fyrir 2. umr.