25.03.1935
Sameinað þing: 6. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í D-deild Alþingistíðinda. (4687)

93. mál, fasteignakaup til handa ríkinu

Flm. (Bjarni Bjarnason):

Ég álít ekki heldur rétt að líta á þetta sem gróðafyrirtæki, heldur benti ég aðeins á möguleika til þess að hafa fé upp úr eigninni. Spurningin er aðeins sú, hv ort Alþingi telur það 4000—6000 kr. virði að verja fyrir skemmdum og eyðileggingu þennan hver, sem af innlendum mönnum og útlendum er talinn eitt fegursta og tilkomumesta náttúrufyrirbrigði landsins.