02.04.1935
Sameinað þing: 8. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 37 í D-deild Alþingistíðinda. (4718)

112. mál, verðuppbót á útflutt kjöt

Forseti (JBald):

Út af fyrirspurn hv. þm. Borgf. skal ég aðeins skýra frá því, að það er ekki venja að kveða upp slíka úrskurði undir umr., heldur er það ekki gert fyrr en komið er að atkvgr. og komin eru fram öll rök í málinu. Ég vil aðeins benda hv. þm. Borgf. á, að slíkur úrskurður var felldur á þinginu 1924, og hefir hv. þm. sjálfsagt verið þar við. Ég mun því taka þetta til athugunar þegar till. kemur til atkvgr., en ég tel ekki rétt að breyta þingvenjum fyrri forseta með því að úrskurða fyrr en umr. er lokið.