02.04.1935
Sameinað þing: 8. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 96 í D-deild Alþingistíðinda. (4766)

120. mál, skaði af ofviðri

Garðar Þorsteinsson:

Ég hefi skrifuð hv. fjvn. erindi um þá brtt., sem ég flyt við þáltill., um 1500 kr. styrk til bryggjugerðar á Litla-Árskógssandi á þessu ári, en ekki fengið neitt svar. Nú er því skotið að mér, að fjvn. muni hafa fund í fyrra málið, og í þeirri von, að hún taki brtt. mína til athugunar, mun ég ekki ræða um hana í þessu flaustri, en taka hana aftur til síðari umr.