04.04.1935
Sameinað þing: 12. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í D-deild Alþingistíðinda. (4783)

120. mál, skaði af ofviðri

Frsm. (Jónas Jónsson):

Ég ætla aðeins að láta þess getið f. h. fjvn., að hún tekur aftur till., sem hún gerði um Litla-Árskógssand. Það er sýnilegt, að hún dregur svo mikinn dilk á eftir sér, að hún hefir ekki séð sér annað fært en að taka hana aftur. Vona ég, að aðrir geri það sama, og ég hefi ástæðu til að halda, að hv. 1.þm. Skagf. ætli að gera það.