02.04.1935
Sameinað þing: 8. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í D-deild Alþingistíðinda. (4878)

21. mál, ríkisrekstur atvinnuvega og ríkiseignarjarða

Sigurður Kristjánsson:

Það er ekki svo að skilja, að ég telji dagskrártill. þessa ekki óþinglega. Hún ber jafnframt vott um litla greind og illt innræti. En þar sem svo mun vera, að meðal allra þjóða finnist menn, enda þótt fáir séu, með gáfnafari 1. landsk. og innræti þm. S.-Þ., þá undrast ég ekki þetta fyrirbrigði eins og jafnvel ástæða væri til. Dagskrártill. þessi á víst t. d. að hnekkja þáltill. minni, en kemur bara hvergi nálægt henni. Ég tel mig því neyddan til að greiða atkv. á móti þessum óskapnaði og segi því nei.