04.04.1935
Sameinað þing: 11. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 222 í D-deild Alþingistíðinda. (4903)

126. mál, forstaða Raftækjaeinkasölu ríkisins

Síðar á sama fundi, utan dagskrár. mælti forseti (JBald):

Ég skal að gefnu tilefni, fyrst hv. 1. þm. Eyf. kveður sér hljóðs, geta þess, að hann mun hafa misskilið mig um fundarboðun í dag. Hann hafði skilið það svo, að atkvgr. um till. til þál. um víti á hendur fjmrh. færi fram kl. 51/2 síðd. í dag, en hún var ákveðin kl. 51/4 síðd. Hv. þm. óskaði, að forseti lýsti þessu yfir, af því að þm. ætlaði að taka þátt í atkvgr., og er það gert hér með.