18.12.1935
Efri deild: 98. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 223 í D-deild Alþingistíðinda. (4906)

200. mál, landsreikningur

Flm. (Magnús Jónsson):

Ég hefi heyrt, að við það, að þessi þáltill. kom fram, hafi verið gerð gangskör að því að finna þessa upphæð, og að hún sé nú fundin. Ég bað samt forseta um að taka till. á dagskrá, svo að það yrði ljóst og staðfest í þingtíð. En þar sem þáltill. þessi hefir náð tilgangi sínum, tek ég hana hér með aftur, því ástæðulaust er, að hún gangi til atkvæða.