09.03.1935
Efri deild: 21. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í B-deild Alþingistíðinda. (519)

2. mál, gjöld 1936 með viðauka

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Hv. 1. þm. Reykv. tók ekki neitt fram um það í n., í hverju fyrirvari hans væri fólginn. Ég gizkaði aðeins á, að hann væri gerður vegna afstöðu flokksins. En þó að það væri nú þetta atriði, sem hv. þm. N.-Ísf. minntist á, þá finnst mér það geta farið saman og allt staðizt.