18.03.1935
Neðri deild: 31. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í B-deild Alþingistíðinda. (526)

2. mál, gjöld 1936 með viðauka

Frsm. (Sigfús Jónsson):

Frv. það, sem hér liggur fyrir, er að efni til samskonar og nokkur tekjufrv., sem samþ. voru á síðasta þingi. Eru þessir tekjuliðir ríkissjóðs hér sameinaðir í einu frv.

Fjhn. hefir athugað þetta frv., borið það saman við hin tilvitnuðu l. og komizt að raun um, að frv. er þeim alveg shlj., og er það einróma till. n., að það verði samþ. óbreytt.