28.11.1935
Neðri deild: 85. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í B-deild Alþingistíðinda. (594)
130. mál, fiskimálanefnd o.fl.
Forseti (JörB):
Út af ummælum hv. þm. Vestm. vil ég segja það, að ég hefi þrásinnis beint því til þm. að gæta hófs í umr., ekki sízt í garð utangangsmanna, og mundi það gleðja mig fyrst og fremst, ef þm. gættu þess jafnan að viðhafa þingleg orð hver í annars garð, þó nokkur munur sé þar á, að þm. eiga kost á að verja sig. Þó að minni háttar ummæli hafi fallið, hefi ég talið til lítils að benda þeim á það, þar eð mér virðist sem þm. sé tamt að vera nokkuð orðþungir. En mættu þau straumhvörf verða, að þm. yrðu aðgætnari í umr., fyrst og fremst í garð utanþingsmanna og einnig í orðasennum hver við aðra innan þings.