18.02.1935
Neðri deild: 6. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í B-deild Alþingistíðinda. (707)

9. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. er flutt í framhaldi af frv. um lántökuheimild fyrir ríkissjóð, sem borið var fram á föstudaginn og afgr. á þeim degi sem l. frá Alþingi. því var lofað í sambandi við afgr. þess frv., að þessi eldri lántökuheimild frá 9. jan. 1935 yrði úr gildi numin og flutt frv. um það í dag og afgr. sem l. Leyfi ég mér því að leggja til, að þessu frv. verði veitt þau afbrigði, sem þarf til þess, að það verði í dag afgr. sem l. frá Alþingi.