11.03.1935
Neðri deild: 25. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 573 í B-deild Alþingistíðinda. (797)

42. mál, póstlög

Sigurður Einarsson:

Um brtt. þessa þarf ég ekki að vera margorður, því að hún skýrir sig sjálf. Það er farið fram á að fara meðalveg á milli póstsjóðs annarsvegar og blaðamanna hinsvegar. Það er farið fram á ívilnun handa blöðunum, en bætir þó um fyrir póstsjóði frá því, sem ella hefði orðið.