21.03.1935
Neðri deild: 11. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 581 í B-deild Alþingistíðinda. (834)
10. mál, jarðræktarlög
Jón Sigurðsson:
Aðeins örfá orð til viðbótar því, sem hv. síðasti ræðumaður sagði. Ég ætla ekki að fara út í það að rekja sögu þessa máls eða endurtaka það, sem síðasti ræðumaður sagði nú. En ég vil aðeins vænta þess, að um þetta mál náist samkomulag. Búnaðarþing það, er nú situr, hefir athugað þetta mál alveg sérstaklega, og nú fyrir fáum dögum lá fyrir búnaðarþinginu till., sem ég vil lesa hér upp, með leyfi hæstv. forseta. Till. er svona:
„Búnaðarþingið vætir þess fastlega og leggur á það alveg sérstaka áherzlu, að Alþingi það, er nú situr, sjái sér fært að verða við þeirri eindregnu og ítrekuðu ósk Búnaðarþingsins og alls þorra bænda, að nema burtu úr jarðræktarlögunum ákvæði 2. gr. um að meiri hluti stjórnar Búnaðarfélags Íslands skuli útnefndur af atvinnumálaráðh., eftir tillögum landbúnaðarnefnda Alþingis.“
Þessi áskorun var samþ. með 14 shlj. atkv., og er það þó vitað, að á búnaðarþinginu eiga sæti menn úr öllum stjórnmálaflokkum. Þykir mér þess vegna líklegt og ég vil fastlega vænta þess, að nú sé svo komið, að allir geti orðið sammála um að afgr. þetta mál fljótt og vel.
Ég vil taka undir það, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, að æskilegast er, að afgreiðslu þessa máls verði frekar hraðað, að svo miklu leyti sem unnt er.