19.02.1936
Sameinað þing: 3. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í B-deild Alþingistíðinda. (11)

Kosning fastanefnda

Forseti (JBald):

það er náttúrlega á valdi þingsins að gera þá breyt. frá þingsköpum að kjósa fleiri menn í þessa n. en til er tekið. En ég geri ráð fyrir, að til þess þurfi að leita til flokkanna. Hvort þeir eru viðbúnir að svara þessu strax, skal ég ekki um segja. Það hefir dregizt lengur en rétt er að kjósa þessa n., svo ég tel rétt að láta kosningu fara nú fram, en ég mundi verða við því að gefa fundarhlé, ef þess er óskað (HannJ: Ég óska eftir því). Ég mun þá verða við þeirri ósk og gefa fundarhlé í 15 mín.