14.04.1936
Neðri deild: 48. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 773 í B-deild Alþingistíðinda. (1114)

63. mál, sveitarstjórnarkosningar

Frsm. (Thor Thors):

Það hefir staðið til, að allshn. athugaði nánar þetta frv., því að ýmislegt er í því, sem þarf að leiðrétta, og sumt, sem þarf að breyta að áliti allshn., þó að ekki hafi orðið af því enn. Ég vil því leyfa mér að mælast til þess við hæstv. forseta, að hann fresti þessari umr., svo að allshn. geti lokið við sínar brtt. áður en þessari umr. er lokið.