15.04.1936
Neðri deild: 49. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 778 í B-deild Alþingistíðinda. (1125)

63. mál, sveitarstjórnarkosningar

Frsm. (Thor Thors):

Eins og hæstv. forseti gat um, hefir þessu máli seinkað dálítið í d. Ég fæ ekki betur séð en ef einhverjar misfellur eru á afgreiðslu frv. hér í d., mætti leiðrétta þetta í Ed., og gæti frv. þar fengið þá meðferð, sem æskileg er. Því að þar sem fundir hefjast hér ekki aftur fyrr en á laugardag, er bagalegt að fresta málinu enn á ný talsverðan tímar.