15.04.1936
Neðri deild: 49. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 781 í B-deild Alþingistíðinda. (1132)

63. mál, sveitarstjórnarkosningar

Gísli Guðmundsson:

Ég skal nú ekki fjölyrða meira um þetta mál, en vil aðeins leyfa mér að bera fram skrifl. brtt., sem að vísu fer alveg í sömu átt og sú, sem hv. 2. þm. N.-M. hefir borið fram, en mér virðist, að það sé heppilegri orðun í 4. lið brtt. á þskj. 326, að þar komi: fullt nafn og heimilisfang — svo þar þurfi enginn misskilningur að vera.