17.04.1936
Neðri deild: 50. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 805 í B-deild Alþingistíðinda. (1199)
64. mál, ólöglegar fiskveiðar
*Frsm. (Héðinn Valdimarsson):
Það var ekki talað um að ná landssímastjóra á fund í allshn., en hinsvegar hefir liðið nægilega langur tími síðan til þess að hv. 8. landsk. gæti náð tali af landssímastjóra út af þessu máli. Ég get ekki séð neina ástæðu til þess að draga þetta mál lengur.