26.03.1936
Neðri deild: 34. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 840 í B-deild Alþingistíðinda. (1231)
92. mál, forgangsréttur til embætta
*Sigurður Einarsson:
Þetta frv. er flutt samkv. till. kennara í heimspekideild Háskóla Íslands og nemenda í þeirri deild. Í fskj., sem er með frv., er það tekið fram, að réttur kandidata frá heimspekideildinni til þess að stunda þá atvinnu, sem þeir hafa búið sig undir, sé minni en annara sambærilegra starfsmanna, og sé það m. a. ekki sambærilegt, hvað kennarar frá kennaraskólanum hafi meiri rétt í þessu efni heldur en þeir, sem ljúka meistaraprófi í íslenzkum fræðum við háskólann, til þess að stunda kennslu í íslenzku eða íslenzkri sögu. N. sá sér ekki fært að verða við þessum tilmælum í jafnvíðtækri mynd og farið er fram á af hálfu háskólans, en hinsvegar hefir hún fallizt á, að þeir, sem lokið hafa meistaraprófi við heimspekideildina, skuli hafa forgangsrétt til kennslu í íslenzkri tungu, sögu og bókmenntum við skóla ríkisins, þegar kennslan nemur fullu kennarastarfi, að því viðbættu, sem stendur í vatill. frá menntmn.: „eða ef sérstakur kennari er tekinn til starfsins.“
Það hefir enginn ágreiningur orðið um þetta í n., og leggur hún til, að frv. verði samþ. í þeirri mynd, sem n. flytur það. ásamt vatill.