25.04.1936
Efri deild: 56. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 884 í B-deild Alþingistíðinda. (1352)

40. mál, brúargerðir

*Jón Auðunn Jónsson:

Í forföllum hv. frsm. vil ég lýsa því yfir, að n. hefir fallizt á að mæla með því, að frv. verði samþ. með lítilli vatill. á þskj. 416. — Annars er það svo, að þótt bætt verði nokkrum ám í lögin, þá er ekki víst, hvenær framkvæmdir verða hafnar um einstakar brúargerðir. Má segja, að það kunni að líða mörg ár þangað til sumar þessar brýr verða gerðar. Þó mundu sumar þær brýr, sem hér eru settar inn, verða látnar ganga fyrir þeim, sem áður hafa verið samþ.

Ég vænti, að hv. d. geti fallizt á að samþ. frv. með þeim brtt., sem hér eru fluttar af n.