22.04.1936
Efri deild: 54. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 891 í B-deild Alþingistíðinda. (1386)

110. mál, tekjuöflun fyrir ríkissjóð

Jón Baldvinsson:

Ég vil leyfa mér að bera fram skrifl. brtt. á þessa leið:

„Aftan við 5. gr. bætist ný málsgr.:

Það, sem ofangreindur tekjuauki kann að fara fram úr 250000 krónum, leggist í sérstakan sjóð, er verði ráðstafað til lagningar Suðurlandsbrautar á árinu 1938.“ — Þetta er svipað ákvæði og áður hefir verið í lögum.