19.02.1936
Sameinað þing: 3. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (14)

Kosning fastanefnda

Þorsteinn Briem:

Ég er dálítið hissa á því, að stjórnarfl. skuli ekki geta tekið ákvörðun um þetta nú þegar. Það skyldi víst ekki stafa af því, að svo yfirfullt sé í utanríkismálanefnd nú þegar, eða að þar hafi verið svo mikil þrengsli að undanförnu, að af þeim ástæðum sé ekki hægt að bæta við manni fyrr en eitthvað um hægði.