21.04.1936
Neðri deild: 53. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 976 í B-deild Alþingistíðinda. (1485)

99. mál, jarðakaup ríkisins

Forseti (JörB):

Þetta er ekki nema 2. umr. málsins, svo að þessum flokki gefst væntanlega tækifæri til að taka til máls, þó að síðar verði, svo að ég sé ekki brýna ástæðu til að fresta umræðunum nú. Hinsvegar mun ég fresta atkv. gr. þangað til á morgun.