06.05.1936
Neðri deild: 65. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 994 í B-deild Alþingistíðinda. (1526)
101. mál, brunamál
Frsm. (Thor Thors):
Þetta frv. miðar að því að herða á ýmsum varúðarráðstöfunum gegn eldsvoða, sérstaklega í sambandi við samkomur. Í 1. gr. frv. eru ákvæði þess efnis, að sérstaklega skuli gætt varúðar, ef kertaljós eru höfð á jólatré. Er þetta sett að gefnu tilefni í vetur, sem hv. þdm. munu sjálfsagt minnast. —. Þá er í 2. gr. frv. ákvæði um, að ekki megi halda slíkar jólatréssamkomur, nema að fengnu leyfi lögreglustjóra eða hreppstjóra, og að því tilskildu, að samkomuhúsin séu vel útbúin að því er snertir dyraumbúnað o. fl. Ennfremur er atvmrh. heimilað að setja í reglugerð fyllri ráðstafanir gegn eldsvoða, sérstaklega í leikhúsum, á jólatrésskemmtunum og öðrum opinberum samkomum. — Enginn ágreiningur var um þetta frv. í n., og geri ég ráð fyrir, af því að nú er mjög áliðið þings, að frv. fái greiðan gang í gegnum deildina.