30.04.1936
Efri deild: 60. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1045 í B-deild Alþingistíðinda. (1592)

73. mál, fræðsla barna

Forseti (EÁrna):

Út af tilmælum frá hv. þm. S.-Þ. um að taka af dagskrá 8. dagskrármálið (frv. til l. um fræðslu barna) skal ég geta þess, að það er tekið á dagskrá samkv. ósk hæstv. kennslumálaráðh., og væri æskilegt, að þeir kæmu sér saman um meðferð málsins.