07.05.1936
Efri deild: 67. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1097 í B-deild Alþingistíðinda. (1679)

126. mál, sala Hamra við Akureyri

*Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Allshn. þessarar hv. d. hefir haft þetta mál til meðferðar, og eins og sjá má á nál., er hún því meðmælt, að frv. verði samþ. Um efni þessa frv. má sjá í hinni stuttu grg., sem því fylgir, og er því óþarfi að rekja það hér.

Þessi jörð liggur innan lögsagnarumdæmis Akureyrar og er nú fallin úr ábúð. Akureyrarbær telur sér hagkvæmt að fá jörðina til afnota. N. lítur svo á, að þar sé um mjög sanngjarna tilhögun að ræða, og er því meðmælt, að frv. verði samþ.