08.05.1936
Sameinað þing: 20. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í B-deild Alþingistíðinda. (172)

1. mál, fjárlög 1937

Stefán Jóh. Stefánsson:

Með því að ekki er einu sinni upplýst, hvenær og hvernig þetta heita vatn verður framleitt, og engin áætlun liggur fyrir um rekstur þessa fyrirtækis og því engar líkur til þess, að þetta geti orðið í náinni framtíð, því miður, þá álít ég ábyrgðarheimildina alveg ástæðulausa og segi því nei.