28.04.1936
Neðri deild: 58. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1153 í B-deild Alþingistíðinda. (1758)

120. mál, jarðræktarlög

*Emil Jónsson:

Ég vil skjóta því hér fram út af því, að hv. þm. A.-Húnv. taldi, að annar stjórnarflokkurinn — og þar átti hann við Alþfl. — hefði ekki greitt atkv. hér í gærkvöldi um þetta mál, að slíkt er alls ekki rétt, því að meiri hl. Alþfl. sat undir umr. um þetta mál hér í gær. (JónP: Meiri hl.?). Já, meiri hl. flokksins sat hér mjög lengi undir umr. um þetta mál þá. En þegar greiða átti atkv. um málið, voru aðeins þrír þm. úr flokki hv. þm. A.-Húnv., og tveir af þeim hlupu út, þegar atkvgr. átti að hefjast. — Ég segi já.