02.05.1936
Neðri deild: 61. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1191 í B-deild Alþingistíðinda. (1779)

120. mál, jarðræktarlög

Forseti (JörB):

Eins og ég tók fram áðan, er sjálfsagt að taka fyllsta tillit til fjarvistar þm. við atkvgr., en þar sem nú stendur svo á, að þinglok nálgast óðfluga, sé ég mér ekki fært að fresta þessari atkvgr. fram yfir helgi. — Ég vil svo beina þeirri ósk til hv. þm., að þeir haldi ekki áfram að karpa um þetta.