08.04.1936
Sameinað þing: 12. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í B-deild Alþingistíðinda. (188)

104. mál, fjáraukalög 1934

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1934 er samið samkv. till. endurskoðenda landsreikninganna, eins og venju er til, og sé ég ekki ástæðu til að ræða um efni þess. Ég vil leyfa mér að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og fjvn.