08.05.1936
Efri deild: 68. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1357 í B-deild Alþingistíðinda. (1908)

109. mál, bæjargjöld í Vestmannaeyjum

*Ingvar Pálmason:

Þar sem þetta er 3. umr. um málið, vil ég leyfa mér að óska þess, að það verði tekið af dagskrá, ekki sízt þar, sem eftir er að halda hér fleiri fundi í d. í kvöld. En í Nd. er til umr. frv. um tekjustofna sveitar- og bæjarfélaga, og afstaða mín til þessa máls fer nokkuð eftir því, hvaða úrslit verða um það frv. í Nd.