24.04.1936
Neðri deild: 55. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1445 í B-deild Alþingistíðinda. (2074)

Afgreiðsla þingmála

Sigurður Kristjánsson:

Ég hefi ekki veitt því eftirtekt, að meðal þeirra mála, sem á dagskrá hafa verið undanfarið, hafi verið frv. til 1. um fiskimálanefnd. Ég vil spyrja hæstv. forseta, hverju það sæti, að þetta mál er svo mikið olnbogabarn, þar sem hann hefir lýst yfir því, að hann vilji ekki, að sýnd sé hlutdrægni um afgreiðslu mála.