10.03.1936
Sameinað þing: 4. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1455 í B-deild Alþingistíðinda. (2115)

Utanríkismálanefnd

Magnús Torfason:

Ég stend aðeins upp til þess að lýsa því yfir, að mér kemur alveg á óvart þessi mikli áhugi Bændafl. fyrir því að taka þátt í utanríkismálum og fá mann í utanrmn. Mér kemur þetta því fremur á óvart, þar eð ég mun vera bezt kunnugur því, hve mikil áherzla var lögð á það af Bændafl. hálfu að koma mér út úr þeirri nefnd á sínum tíma.